Mig langaði svo mikið að setja inn nýja færslu, en ég er í bilaðri tímaþröng og ég er búin að ofhugsa hvað mig langar að skrifa - átröskunarpúkinn minn er byrjaður að ritskoða mig á fullu. Þess vegna ætla ég bara að hafa þetta mjög stutt í dag.
Mig langaði að segja aðeins frá meðferðinni, eða í rauninni bara einu atriði sem mér finnst mjög mikilvægt. Eftir hverja máltíð á dagdeildinni setjumst við saman og segjum hver öðrum frá stærstu sigrum okkar þennan sólarhring (eða daga ef það er helgi). Mér finnst þetta svo mikilvægt af því að í þessari meðferð (og ég tala bara fyrir sjálfa mig núna, þó þetta sé ábyggilega svona hjá öðrum líka) einblínir maður svo á allt það neikvæða - hvort sem það er eitthvað sem maður er ósáttur við í meðferðinni sjálfri eða bara eitthvað sem maður er ósáttur við sjálfan sig, t.d. að manni gangi ekki nógu vel og svo framvegis.
Fyrir flest fólk hljómar þetta ábyggilega alveg rosalega hversdagslegt og ekkert merkilegt en fyrir mig t.d. hafa þessir sigrar mun meira gildi og hafa yfirleitt verið rosalega, rosalega erfiðir. Flesta dagana eru sigrarnir mínir það eitt að mæta á dagdeild og hlaupa ekki út úr matsalnum í hádeginu og fleira í þá áttina. Í gær voru sigrarnir mínir nokkrir: Mér tókst að fara í Bónus, 10-11 og í fatabúð með Gísla í þessari röð, labbandi og án þess að fara heim á milli eða fá geðveikt panic kast. Þetta hljómar ábyggilega eins og rosalega lítið mál, en fyrir mér er þetta fáránlega erfitt! Ég get varla farið út úr húsi ein og hvað þá í fatabúð :O þess vegna er ég rosa ánægð með þessa frammistöðu:)
Mig langaði bara að deila einhverju smá jákvæðu með ykkur:)
reyni að skrifa eitthvað gáfulegra næst
lúna
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
Til Hamingju! :D Þú ert hetja og mundu að gera ekki lítið úr sigrunum.
ReplyDeleteMér finnst ég til dæmis BEST á hverjum degi sem ég fæ mér ekki sígó. Það er sigurinn minn!
ég get kennt þér margt um mont ;)
Hógværa systirin Lása
ú næs, kenndu mér meir:):)
ReplyDelete..kannski líka að vera hógvær?
það er mjög mikilvægt að fókusa á sigra og þeir eru merkilegir því þeir eru eitthvað sem þér finnst sjálfri stórt skref..og það er það:)
ReplyDeletejá ég er til dæmis manna best í að vera hógvær :) Lásan
ReplyDelete